21.5.2010
Ég vissi ekki að öllum langaði ekki að stofna fyrirtæki...
Í viðtali mínu við frumkvöðul sem er 36 ára og hefur stýrt fyrirtæki í nokkur ár þá sagði hún "ég er núbúin að gera mér grein fyrir að því að alla langar ekki að stofna fyrirtæki." Mér fannst þetta mjög skemmtilegt og týpiskt í ljósi þess að við erum svo vön því að hugsa út frá okkar eigin forsendum að við gerum ósjálfrátt ráð fyrir því að allir hugsi eins og við sjálf. Starf og starfsval er eins og hvað annað val sem við höfum í lífi okkar, gott er að gera sér grein fyrir að við erum öll einstök og höfum ólikan smekk.