1.6.2010
Átti Steinunn Valdís að segja af sér?
Steinunn Valdís Óskardóttir sagði af sér og kvaddi þingheim í gær. Margir hafa bent á það að það sé réttlætismál að hún segi af sér en ég er því ósammála. Við gleymum því að þegar hún fékk 13.milljónir í styrki þá var það hefðbundin aðferð til að koma sér á framfæri í pólitík að sækjast eftir og fá styrki í framboð sitt. Öðruvísi er og var ekki auðvelt að fara fram, hluti af lýðræðinu er að fyrirtæki og einstaklingar geti styrkt þá sem þeir kjósa að styrkja. Bent hefur verið á það í ótal rannsóknum að konur eigi erfiðara með að fá styrki en það er hins vegar áhugavert að það eru næstum eingöngu konur sem hafa tekið á og verið látnar sæta "ábyrgð" vegna hrunsins. Nægir þar að nefna Ragnhildi Geirsdóttur, Ingibjörgu Sólrúnu, Steinunni Valdísi og fyrrverandi varaformann sjálfstæðisflokksins Þorgerði Katrínu. Nú er ég ekki að bera í bætifláka fyrir þessa einstaklinga en við verðum að passa okkur á þeirri tilhneigingu að dæma, sérstaklega finnst mér nóg komið að því hvað konur eru dæmdar hart.