Námskeið

Engin námskeið væntanleg

Liðin námskeið:
Dagsetn.Námskeið
6.9.2009 Láttu ljós þitt skína: Það eru margar leiðir að markinu.

Á þessum námskeiðsdegi munum við velta fyrir okkur hvernig við getum hlustað á innri rödd vísa okkur veginn í leik og starfi. Við munum líka fara yfir hvaða ráð eru til staðar þegar við misstígum okkur eða villumst af leið og erum ráðþrota um næstu skref. Frábærir fyrirlesarar: Janet Attwood metsöluhöfundur frá USA mun fara yfir hvernig við finnum eldmóðinn og endurtendrum hann reglulega. Guðrún Bergmann sem hefur gefið út margar bækur, stofnað nokkur fyrirtæki og er ávallt trú sinni köllun segir okkur frá sinni leið. Árelía Eydís Guðmundsdóttir fjallar um hvaða vegvísi við getum stutt okkur við þegar við veljum okkur starfsvettvang. Von er á fleiri gestafyrirlesurum sem eiga eftir að staðfesta. Skráðu þig og vertu með!

15.4.2009 Taktu völdin: Stefnumótun í eigin lífi, snúðu vörn í sókn á erfiðum tímum!

Vertu með í að auka árangur og hamingju þína með því að setja þér skýr markmið. Þú setur markmiðin en ég sé um eftirfylgnina og við komum okkur upp úr hjólfarinu í lífi og starfi. Ég skora á þig, nýttu tækifærið til að horfa í eigin barm og auktu hin raunverulegu verðmæti þín. Sjáumst á námskeiðinu :-) nánar á ehi.is Árelía

19.2.2009 Þjálfun ráðgjafa - Virk

þjálfun ráðgjafa sem munu starfa fyrir endurhæfingasjóð eða Virk. Farið var í hvatakenningar, mismunandi leiðir til að finna styrkleika skjólstæðinga og sína eigin. Einnig var fjallað um forystu og hvernig eigi að byggja upp viðtöl.

17.4.2008 Þjálfun í launaviðtölum

Þjálfun í launaviðtölum Í apríl og maí verða haldin námskeið í launaviðtölum fyrir félagsmenn allra stéttarfélaganna. Fyrirlesari er dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir lektor við Viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Markmiðið með námskeiðinu er að: * Undirbúa þátttakendur fyrir regluleg launaviðtöl. * Allir þátttakendur setji sér markmið um laun og launaþróun * Þátttakendur þekki, skilji og tileinki sér grunnatriði í samningartækni. * Þátttakendur öðlist aukinn skilning á sínum eigin "samningastíl" eða tækni. * Auka sjálfstraust þátttakenda í samningstækni við launaviðtöl. Fjallað verður um samningatækni, markmiðasetningu og tengsl sjálfstrausts og árangurs. Um er að ræða þriggja tíma námskeið í formi fyrirlestra og æfinga en lögð er áhersla á að þjálfa þátttakendur í viðtalstækni með virkri þátttöku þeirra. Þörfin fyrir námskeið af þessu tagi eykst stöðugt með vaxandi áherslu á einstaklingsbundna samninga. Nýgerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði lögðu enn skýrari línur í þessa veru.

7.2.2008 Hvað næst? Skipulegðu starfsferill þinn!

Opið námskeið sem haldið verður í lok mars 2008 fyrir alla þá sem eru að velta fyrir sér hvort þeir eru í rétta starfinu og hvernig þeir eigi að finna "draumastarfið". Farið verður í: - Mismunandi þarfir hvers og eins - Starfsumhverfi - Innri hvata - Markmiðasetningu - Flæði Námskeiðið er eingöngu eitt kvöld og kostar 4500. Skráning hér á vefnum.

25.1.2007 Breytingastjórnun

Námskeið á vegum EHÍ Ætlað stjórnendum, starfsmannastjórum, sérfræðingum í mannauðsstjórnun og öðrum sem bera ábyrgð á breytingarferli innan fyrirtækja og stofnana. Fjallað er um helstu þætti sem hafa áhrif á starfsanda fyrirtækja í breytingaferli, bæði frá fræðilegu og verklegu sjónarhorni. Markmið námskeiðsins er að stjórnendur öðlist skilning á mismunandi viðbrögðum starfsmanna; farið er rækilega í mikilvægi viðhorfa til breytinga almennt og á vinnustað. Meðal efnisatriða námskeiðsins er leiðtogahæfni í eigin lífi, breytingastjórnun, persónuleikamat og kynning á Meyers-Brigg persónuleikaprófinu, þar sem sérstaklega er fjallað um kenningu um mismunandi viðhorf til breytinga, sem prófið byggir á. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, verkefna og umræðu.

30.11.2006 Vinnan og ég.

SPAR

15.11.2006 Hvað viltu verða þegar þú ert orðin(n) stór?

Í samvinnu við Petrínu Mjöll Jóhannesdóttir mun ég verða með námskeið í nóvember sem ber heitið: Hvað viltu verða þegar þú ert orðin(n) stór? Þetta námskeið er ætlað fólki á öllum aldri sem vill staldra við og taka stöðuna með það að leiðarljósi að bæta tilveru sína.

14.11.2006 Forysta lærðu að virkja krafta þína

Forysta: Lærðu að nýta krafta þína. Námskeið sem haldið er á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands og byrjar í lok október: Markmið námskeiðsins er að stjórnendur öðlist raunverulega færni í forystu með því að virkja styrkleika sína og þekkja sjálfan sig og skilja sjónarmið og framkomu annarra. Sérstök áhersla er lögð á sjálfsþekkingu. Grundvallar þema þessa námskeiðs er: Þú ert þitt eigið fyrirtæki. Eftir að hafa lokið þessu námskeiði eiga stjórnendur að hafa góða þekkingu á áhrifum þeim sem þeir hafa á umhverfi sitt og hvernig þeir geti nýtt sér þau til að ná hámarksárangri í starfi og sem stjórnendur. Námskeiðið er krefjandi og stjórnendur verða að vera tilbúnir til að vinna með sjálfa sig til að öðlast nýja færni.

30.9.2006 Námskeið í Keflavík

Ég mun verða með námskeið úr bókinni minni Móti hækkandi sól þann 30.september næstkomandi. Þetta er þriggja tíma námskeið verður haldið hjá Símenntarmiðstöð Reykjanesbæjar.

30.9.2006 Glerþakið - Leiðtogar.

Glitnir.

30.4.2006 Vinnuumhverfi og breytingar.

Landsbanki Íslands.

7.3.2006 Skipulagsheildir og stjórnun: Msc

Þetta er skyldurkúrs í meistaranámi í stjórnun og stefnumótun en hann má finna í kennsluskrá HÍ.

7.3.2006 Stjórnun starfsmannamála.

Valkúrs á þriðja ári fyrir þá sem eru að ljúka grunnnámi og hafa áhuga á starfsmannastjórnun. Sjá kennsluskrá HÍ.

7.3.2006 Skipulagsheildir og stjórnun: MBA

Grunnkúrs í stjórnun, tekin á fyrsta ári í MBA náminu - kenni ásamt Runólfi Smára Steinþórssyni. Sjá á heimasíðu MBA-námsins.

7.3.2006 Forysta.

Valkúrs í MBA-náminu, tekin á öðru ári. Sjá námslýsingu á heimasíðu MBA-námsins.

Póstlisti

Skráðu þig á póstlista og fáðu tilkynningar um fyrirlestra og fleira